í strumpalandi

Strumpurinn í Danmörku

20.11.2008 16:23:34 / josan

Þessir danir

Ein mestu vonbrigðin eftir að ég kom hingað út aftur í haust voru þau að pizza hut sem er hérna rétt hjá var búið að loka, sem kannski var fínt þar sem að það er kreppa en ég huggaði mig nú við það að paradis isbúðin hérna 200 metra frá gat alltaf glatt mig á vondri stund... En nei hún verður lokuð í ALLAN vetur! Hvað er málið??
Ég sæi það í anda ef að ísbúðunum heima væri lokuð þegar það færi undir 15 gráður... Það er eins og maður geti ekki borðað ís þegar það er kalt úti, hefur allavega ekki stoppað mig hingað til.

Annars er ég búin að baka meira af smákökum og konfekti en hollt er fyrir geðheilsuna, og borða það líka. Gera Jólahreingerningu og skreyta og setja jólatréið upp og kaupa rosa mikið af mandarínum en samt koma jólin ekki =(

Æi ég er blogg andlaus útaf pissu og ísskorti....

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 19:51:36 / josan

æ ég er orðin þreytt á Jörgen

Í dag gerðist svoldið skemmtilegt, við fengum kall til að laga vaskinn okkar. Málið var nefnilega að alltaf þegar Morten var í sturtu og ég vaskaði upp þá kom brúnt vatn úr krananum. Svo eftir svona 10 skipti (vegna þess að ég er með svo langan fattara fattiði) þá rann upp fyrir mér ljós að það var kannski vegna þess að hann var í sturtu að það kom brúnt vatn. Og loksins dröttuðumst við til að hringja í húsvörðinn og voila það er kemur bara einungis hreint glært frábært vatn úr vaskinum núna! Aldeilis lúksus.

Mér var nú líka alltaf svo illt ímaganum þegar ég drakk vatnið en var samt ekkert að kveikja útaf hverju það var...hehe (þarna var langi fattarinn að verki aftur)

Æ ég varð bara að blogga vegna þess að ég var orðin svoldið þreytt á honum Jörgen sem var alltaf að troða sér á toppin á síðunni minni. Það eru líka langflestir farnir að kalla mig júunn núna þannig þetta er allt að koma.

Ég er í fríi alla vikuna, ótrúlegur lúksus og á laugardaginn ætlum við í smá road trip til Århus og heimsækja Sigrúnu og kíkja á barnaföt á bumbubarnið! Hlakka svo til!!

Gott að hafa einhverja klakverja til að tala við svona því að Berglind er farin :cry:

Svo eru bara 2 mánuðir þangað til ég kem heim (svo lengi sem express fer ekki á hausinn allavega) Þá höldum við Hrefna bara jól hérna á meðal baunanna, það er svosem allt í lagi því ég á jólatré =)

Og Þóra þú ert alveg að misskilja það er ótrúlega cool að blogga, annars væri ég náttla ekki að því, það er ekki seinna vænna að fara að blogga svo að þú verðir cool aftur ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 19:13:04 / josan

Jörgen bloggar

 

Ég er byrjuð í skólasundi. Eftir 10 ár í grunnskóla hélt ég að þetta vesen væri búið en… nei. Ég man bara á hverju ári byrjuðum við á því að liggja á gólfinu og rifja upp bringusundssundtökin… Ég var alltaf jafn yfir mig hneyksluð enda þegar maður er búin að vera einu sinni í viku í skólasundi í 7-8 ár og er orðin 14-15 ára þá er það nokkuð á hreinu að maður sekkur ekki í 70 cm djúpri laug…

 

Við byrjuðum á því þegar við komum útí laug að kennarinn sagði okkur að synda 2-4 ferðir bara svona til að ná í hita. Þá heyrðist frá einum:”bíddu… ha, eigum við ekki að læra að synda hérna, ég kann ekki að synda…”  Þá sá ég bara í anda alla liggjandi á gólfinu og kennarann eins og fisk uppá borði; spyrna, saman, kreppa… en sem betur fer þá var það ekki alveg það slæmt. Í staðinn lærðum við bara að fljóta þannig að þegar þau koma í djúpu laugina þá geta þau bara flotið. Ágæt lausn.

 

En það gengur bara ágætlega í skólanum, ég var svo heppin að vera sett í 4 manna hóp með þeim 2 sem að mættu 2 fyrstu dagana og hafa bara ekkert látið sjá sig síðan, þannig það er smá pressa núna á okkur 2 sem þurfum að gera þetta. En það er samt svo gaman í skólanum að það er allt í lagi =)

 

Jájá. Ég er kölluð Jörgen. Fólki finnst flókið að það er komma yfir o-inu þannig að þau ákváðu að það væri miklu skemmtilegra að kalla mig Jörgen… Enda er ég nú sottan jörgen

 

Og það var ekki fleira í dag…

 

Kveðja Jörgen

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 19:08:48 / josan

Allt að gerast!

 

Nú er maður orðin háskólanemi. Og mér líkar það svona rosalega vel. Er í alveg frábærum bekk með æðislegu fólki og rosa flinkum kennurum! Fór í sumarbústaðarferð í seinustu viku með bekknum í þrjá daga og spiluðum rassabolta og borðuðum kökur og fleira skemmtilegt.

 

 Svo er ég búin að koma á kökudögum alltaf á föstudögum og var svo myndarleg að baka tvær kökur á föstudaginn seinasta.

 

Annars er nú voða lítið að frétta. Það er rosa mikið félagslíf í kringum skólann og bekkinn þannig það er nóg að gera. Æhh, ohh ég er alveg bloggtóm…

 

En ég er allavega á lífi….

 

Kemur meira fljótlega

Knús og kram


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 11:16:33 / josan

Myndir

Jæja nú koma loksins myndir...



Þarna er ég orðin fastgróin og fer sennilega ekkert á næstunni



Og fína hillan sem að pabbi hans Mortens smíðaði fyrir okkur inní gatið...



Og það er komin mynd á vegginn...

Ofurhetju ökklinn minn

Bæklaði ofurhetjuökklinn...

Það er búið að vera svo ótrúlega heitt hérna að sun lolly er orðin aðalfæðuvaran á heimilinu, kláruðum 5 pakka um helgina... =/

En ég kvarta ekki, er búin að sitja útá verönd í sólbaði og svo einn daginn var ein önnur stelpa þar í sólbaði og gat nú verið að það væri hinn sólþyrsti íslendingurinn í blokkinni =)

Svo koma kannski nokkrar fleiri myndir frá helginni, Morten var svo góður að hleypa ferðahömluðu mér útúr íbúðinni og við keyrðum til Blokhus og fengum okkur ís og lágum á ströndinni framá kvöld í 30 stiga hita... mmmm bara kósí

Já og á meðan ég man, Til hamingju með daginn Freyja...
Sem að þýðir að ég á ammli eftir 18 daga.......... Jeiiiiiiiiiiii

Knús og krammer



» 12 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 17:25:26 / josan

Geggjað fyndið!!!

Fríða mín ég verð að hryggja þig með því að ég er ekki ennþá búin að taka myndir af nýja dótinu mínu, en ég blogga samt fyrir þig og Hófí, virðast ekki vera aðrir sem að skoða þetta blogg, en ég geri allt fyrir ykkur krúsídúllurnar mínar :d

Í gær var ég að vinna og þar af leiðandi þurfti ég að labba niður stiga, í tréklossum, Veitir ekki á gott... Þegar maður labbar maður niður stigann í vinnunni þá getur maður séð inní eróbik salinn og þar var step tími í gangi og ég horfði þangað inn og sá að það var einhver þar inní sem að gerði allt öfugt við alla hina svona svoldið eins og þegar ég prófaði þetta á sínum tíma í Hreyfingu með Önnu. En það er víst ljótt að gera grín að öðru fólki þannig að karma greip inní og lét mig halda að ég væri komin alla leið niður þegar ég átti tvær tröppur eftir og í stuttu máli þá endaði ég uppá slysó....

Ég er nú ekki brotin sem betur fer en verð nú á hækjum í einhvern tíma... gamangaman.

Þannig ég neyddist víst til að sitja fyrir framan að tölvuna og láta sem ég væri að lesa efnafræði í allan dag þar sem það var eeeeeekkert að gera, sjónvarpið ákvað að vera með mótþróa og sýna mér bara hvíta og svarta maura í stríði á öllum stöðvum og internetið ákvað líka að tengjast ekki, sem að var reyndar bara vegna þess að það var ekki í sambandi (ljóskan ég) en ég kemst aftur í samband við umheiminn þegar þetta grábölvaða próf er búið á morgun... hlakka svo til!

En það er víst komin tími á að ísa fótlinginn....

KNús og krammer og smá sól heim (tími sko alveg smá sól þangað þar sem ég get ekki farið útí sólbað =( )




» 6 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 19:01:27 / josan

All you need is loveeeeeeeee

Hvað er þetta með love actually??? Ég get horft á hana aftur og aftur og aftur. Ég er verri en krakkar og teiknimyndir!! Mér líður bara alltaf svo vel þegar ég er búin að horfa á hana. Og einu sinni þá horfi ég á hana 3 sinnum í röð... steik...

Það er rosalega gott veður hérna, fór sko bara útí sólbað í dag, og kíkti smá inní búðir inná milli sólbaðanna =)

Jájá jæja það fer samt eitt í taugarnar á mér (er ennþá að tala um myndina náttla) Það kemur aldrei fram hvað gerðist með Carl og Sara, getur einhver sagt mér það???

Æi ég veit ekki hvað ég á að segja meira skemmtilegt eða ekki eins skemmtilegt, þið eruð allavega orðin fróðari um minn fábrotna kvikmyndasmekk...hummhumm

Já ég er að gera málverk. Við erum ekki sammála um lisasmekk þannig að ég ákvað að kaupa málningu og striga og mála eitthvað fínt svo að hann gæti ekki sagt að það væri ljótt en ég komst hinsvegar að því að ég hef akkúrat enga málninga hæfileika what so ever...

OOOOg stelpur (sem að eruð að koma =D=D=D) eins gott að þið munið eftir stuttbuxunum.... Hlakka svooooooo mikið að sjá ykkur!!!

Riiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiisssssssssa stórt knús í bala!

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 20:16:50 / josan

Úúúúú með lauk

  

Ég veit ekki hvað ég vil… sem er tómt vesen. En ég er að reyna mitt besta til að skrifa að minnsta kosti 3 færslur á ári og gengur svona líka ljómandi vel, komnar heilar tvær núna. Maður á alltaf að setja sér óraunhæf markmið það er svo gaman að fara framúr þeim nebbla... (fróðleikskorn dagsins á la Jórunn)

Það er svo mikið vesen að mig langar að læra eitthvað sérstakt en mig langar ekki að vinna við það þegar ég er búin að læra það en mig langar að vinna við eitthvað en mig langar alls ekki að læra það… Hvað gera danir þá….??

 

Vá ótrúlegt hvað ég hef eitthvað lítið að segja þó það sé svona langt síðan ég bloggaði…

HUmmm, já ég er byrjuð að hreyfa aukakílóin í von um að skilja þau eftir einhverstaðar á leiðinni og er búin að draga Berglindi til að kaupa kort svo ég sé ekki alein, ekki slæmt að hafa góðan félagskap í leiðinni =)

 

Fór í pilates um daginn, hélt að það væri rosa erfitt en svo gekk kennarinn inn sem var komin cirka 10 og hálfan mánuð á leið og varð fyrir smá vonbrigðum hélt þetta væri alveg þvílíkur hamagangur sem ég var að fara í. En þetta var samt rosalega rólega erfitt eiginlega rólegustu erfiði sem ég hef farið í..

 

Jæja svo var nú skitið í laugina um daginn aftur, þyrfti að kenna þessum dönum að halda í sér. Þurfti að loka stóru lauginni og aflýsa allri kennslu og voða vesen og það fyndna er (Varúð: ekki fyrir viðkvæma) að kúkurinn var svo stór að það var ekki séns að það kæmi útúr einhverjum krakka… Og þá pælir maður aftur sko hvað er að fólki, fulælorðnu fólki. MAÐUR KÚKAR EKKI Í VATNi!!! Eða hvað??

 

 

Og myndirnar vöktu svo mikla lukku að ég smelli hérna einni af sætustu og krúttlegustu og flottustu og frábærustu frændum í geimi =) (stal myndinni frá sæta afa og ömmu, vona að það sé í lagi ;)

 

Svo er nú bara 18 dagar þangað til sætu Enniháíangirnir mínir koma heim til baunalands aftur…Hlakka svo til =)


Trallallallallaa

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 10:33:10 / josan

Alltaf að bæta við sig...

 

Það er margt að gerast þessa dagana það er ekki hægt að segja annað. Núna er ég að horfa á hund sem að borðaði stein og ég er að spá í að segja ekki hvernig þeir náðu steininum úr. Þeir eru svo obbolega sniðugir þarna á animal planet…

EEEenn ég var að eignast lítið rosalega sætt frændaskott í gær. Hann er bara svo ofboðslega sætur, eins og hann á nú reyndar ættir að rekja til ;)

le petit dernier
Litli sæti pínu litli, eins og ég kalla hann =)

Svo var ég með fyrsta ungbarnasundtímann minn í gær, var ekkert smá stressuð en það gekk rosa vel og börnunum fannst ég obbolega skemmtileg =)

En til að bæta upp fyrir allt bloggleysið ætl ég að setja inn nokkrar myndir, frá því mamma, pabbi og Freyja komu í heimsókn og svo frá því ég fór til Roskilde =)

Njótist vel...

Sofið í eldhúsinu
Það er ekki hægt að segja að það hafi verið mikið pláss auka...

Blómavasi eða list
Fékk svona fín blóm og blómavasa =)

Freyja og dátinn
Freyja litla fann sér svona fínan kall sem að hún reyndi og reyndi að fá með heim og hann var ekki alveg á þeim buxunum.

Kínverk skúta
Pabbi að skoða kínverska skútu

Einmitt
Pabbi búin að éta helminginn af deiginu með hráu eggjunum í... hvað getur maður gert??


En það varð á endanum til einhvers kona eftirréttur og hann var líka bara svona obbolega góður.


Svo hitti ég gamla vinkonu í dýragarðinum, hún var eitthvað fúl yfir því hvað ég heimsótti hana sjaldan.

Tímon 1, Tímon 2, Tímon 3, Tímon 4, og Tímon 5

Jórunn og Morten heima hjá sér
Þarna eigum við heima...

Svo var ég líka í Roskilde...


Og þarna eru sætu snúðarnir mínir í Tarsan leik


Og við fengum obbolega góðan mat sem strákarnir elduðu

Fyrst voru þeir rosa leiðir en....




En svo kom ég í heimsókn og þá urðu þeir rosa glaðir


Þeir voru svo duglegir þessar elskur



Danna finnst þessi knúslegheit greinilega ekki í lagi..
DSC06778
Svo var spilað partý spilið


Og miiiiiiiiiikið hugsað...

Tíminn búin...


DSC06785
Hvað haldiði að þetta sé??? Svar neðst á síðunni


Svo var spilað smá badminton, og Danni komst í úrslit =)


En Danmörk tekur á og á endanum sváfu allir eins og litlir snúðar....







ravs:rukánS


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 20:42:17 / josan

ÆÆ...kúkur í lauginni

Hold da op mand! Það er greinilega mjög langt síðan ég bloggaði, það er búin að gjörumbylta blogcentral og ég kann ekki á neitt... en það er svo langt síðan ég hef bloggað að ég sé það að ég verð að fara hægt á stað þannig þetta verður ekki langt blogg...

Mig vantar samt hugmynd.
Það eina sem ég borða er pasta og kjúklingur eða kjúklingur og pasta og kjúklingapastarétt...  Og ég er búin að sjá að það gengur ekki til lengdar, og ég er líka búin að sjá að það er ekki alveg jafn jákvætt og ég hélt að vera matvandur fátækur (næstum því) námsmaður sem kann voða lítið að elda....

En ég stóla á að það sé einhver þarna úti sem eigi góða hugmynd að mat handa mér....

Já og það var kúkað í laugina í dag, ég var þó ekki svo heppin að fá halda í háfinn þegar hann var veiddur uppúr...(damn)

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 14:56:46 / josan

You can dance, you can shine....

Smá bloggpása í gangi 

Mikil veikindi í gangi á heimilinu, búin með hálfa klósettrúllu í dag… stefnan er tekin á tvær ¾ rúllur

Svo hitti ég músarindilinn minn hana Önnu í Köben á miðvikudaginn, hlakka svo til. Áttaði mig samt ekki á því þegar ég var að kaupa jólagjafirnar að ég þyrfti að fara með það heim og var þarfafleiðandi ekki mikið að pæla í stærð eða þyngd…. en það er bara seinni tíma vandamál. 

Er líka byrjuð í nýju vinnunni, og það vantar víst einhverja til að kenna í vatneróbik og vatnaleikfimi og ungbarnasundi og ég var spurð hvort ég hefði áhuga, vildi bara að ég gæti tekið nokkur stykki krúsalinga með mér heim úr ungbarnasundinu, þau eru svo óendalega sæt… 

Hef annars voða lítið að segja, dönsku jólafrokostarnir eru liggur við á hverju kvöldi með tilheyrandi rúgbrauði, fisk, sinnepi, brúnuðum kartöflum og medister pylsum, ég er kannski pínu matvönd en þetta er ekki alveg jólamatur að mínu skapi…  

Jæja ég ætla að halda áfram sófaligginu og snítinu….  


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 19:42:50 / josan

Rosaleg upplifun

 Það gerðist svolítið hræðilegt í vinnunni í dag! Ég sat bara svo stille og rolig eins og ég er vön niðrí fötex að og smátjattaði við gömlu konurnar sem að finnst ég svo skemmtileg og svo kom það. Eins og þruma úr heiðskíru lofti… Risakönguló ca 243 cm í rúmmál (frekar stórlega ýkt hjá mér... en hvað um það;) hoppaði á skjáinn á tölvunni fyrir framan mig og ég eins sem var svo einstaklega róleg hoppaði uppúr stólnum og það gæti verið að ég hafi gefið frá mér eitthvað frekar skrækt hátíðnihljóð þó ég muni það ekki alveg, þetta er allt saman ennþá í móðu enda með eindæmum hræðileg lífsreynsla… 

En hvað um það10 klukkutíma vinnudagur á morgun ásamt litlu korteri til viðbótar.

Obbolega spennandi, en ég lifi fyrir það að það eru bara 4 vinnudagar eftir í þessi leiðinlega fyrirtæki. Ég verð aðeins meira að kvarta yfir þessu blessaða Fötex fyrirbæri.

Ég skilaði skattkortinu mínu fyrir einhverjum tveimur vikum og svo var ég látin vita klukkan 2 á föstudaginn að það væri týnt. Fyrst trúðu þau ekki að ég væri búin að skila því en svo mundi ein loksins að ég hafði gert það. En allaveg þau eru búin að tína því. Og ég átti að útvega nýtt fyrir mánudaginn. Skattadótið lokar kl. 2 þannig að ég gat ekki hringt þangað, en ég gat víst prentað það út af netinu. Svo núna í morgun fór ég með það í vinnuna en nei þá taka þeir ekki við kopy-um bara upprunalega skattkortinu, en nei það er ekki hægt því þeir eru búnir að tína því!!!!! Rækallans bjálfar!

Þannig að það verður aðeins tekin 50% skattur af mér… í staðinn fyrir 0!!!! 

EN ég er víst búin að skrifa nóg um vinnuna 

Hver hefði annars getað að ég sjálf væri búin að kaupa nánast allar jólagjafir og pakka þeim inn og kaupa jólatré og skreyta þann 25 Nóvember!

Stóra fína jólatréið og jólakertið og jólaSÚKKUlaðidagatölin og nokkrir pakkar 

Og þar sem að það er ekkert alltof mikið pláss fyrir jólaskraut þá fékk það að hrúgast allt saman á einn stað =)

 

Svo varð ég ástfangin af þessum skartgripastandi og keypti hann í fyrirfram jólagjöf handa mér =D Og fallega fiðrildið sem að Þóra stóra gammér =) 

Og Þarna er húsbóndinn að hvíla sig... 

Bara snilld! 

Jæja þetta er orðið of langt aldrei þessu vant 

Góða nótta fallega fólk og takk fyrir öll sætu kommentin =D 

KnnnnnnnnnnnnÚÚÚÚÚÚsssssssssshhh


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 21:00:19 / josan

Í stuttu máli...

Hvernig hitar maður spagettíafgang ef maður á ekki örbylgjuofn, ég er sjúklega mikið búin að pæla í því en hef greinilega bara aldrei heyrt lausnina því ég finn hana ekki í hausnum mínum...

En það er farið að snjóa og ég var svo ótrúlega glöð þannig ég fór út að dansa í snjónum...

Það snjóar það snjóar

Það sést reyndar ekkert rosalega vel en þetta er svona ekta jólasnjór riiiiiisa snjókorn og alveg logn... Og hérmeð er ég komin í jólaskap  :klikk: (ekki að ég sé reið en þetta var bara svo jólalegur kall)

Svo er ég byrjuð að hætta að baka kökur og hætt að elda ekki mat... =) komst að þeirri niðurstöðu eftir 11,7 kílóa hækkun af óútskýranlegum óstæðum á viktinni... hummhumm

Og ég er bara frekar góð í að gera mat eða hann lítur allavega vel út sko, tók meira að segja mynd fyrir áhugasama ;)

Girnó...

Kjúklingasalat með nachos....mmmmmmmm það var obbolega gott!

Og svo keypti litli sæti rúsínubollinn minn blóm handa mér í gær =)

Sætu blómkrúttin mín


Já skemmtilega baunalíf, get ekki sagt annað =)

Svo er ég að bíða eftir svar frá sundlauginni sem ég er búin að sækja um í sem lífvörður og ég vona svo rrrrooosalega að ég fái því ég er alveg komin með upp í kok af þessari blessuðu vinnu minni með virðingu fyrir öllum í þessu starfi sem að ég hreinlega dáist af eftir að hafa unnið í mánuð!

Já ekki mikið meira skemmtilegt í þetta skipti, nema jú að Snjólaug á auðvitað afmæli, orðin tvítug litla skjátan. Til hamingju með það og njóttu dagsins rosa vel!

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 21:18:58 / josan

jóljólajólagríssssssss

OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOhh

OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOh

OF boð slega hata ég þettta

ég var búin að skrifa svoooooooo mikið og svo var ég bara að skrifa og nei þá bara datt allt út takk, án þess að ég ýtti á neinn takka...

Hvað ætli annars hafi verið skrifaðar margar svona færslur á blog.central.is??? Örugglega margar

En vá hvað ég varð reið, ef mér þætti ekki svona vænt um tölvuna mína þá veit ég ekki alveg hvort að hún væri á lífi lengur....

En ég ætla að koma með fróðleikskorn í staðinn ég nenni ekki að skrifa allt það sama aftur....

Þið verðið nú að fá eitthvað útúr því að lesa þessa lesendur góðir, svo það sé ekki til annars en að ég fái hann pabbi minn krúsilíus til að lesa þetta :lol:

  • Letidýr sofa 70% af lífinu sínu
  • Flóðhestar drepa flestar manneskjur af öllum dýrum
  • Hvíthákarlinn rekur hausinn uppúr vatninu til að sjá eftir fæðu
  • Að hamarhákarlinn hagar sér undarlega (náði ekki alveg afhverju það var samt)
  • Ég horfi aaaaaltof mikið á animal planet...

Svo ætla ég að setja hérna inn mynd af íbúðinni fyrir hana fríðu litlu sem að fattaði ekki alveg flickr dæmið ;)  en ég elska þig samt blómið mitt!

 DSC03347

Fína kommóðan

DSC03339

Stóra stóra eldhúsið þar sem allar kökurnar verða til :lol:

DSC03345

Stofan og sófadýrið ;)

DSC03348

Góða rúmið...

Jæja núna er badmintonið að verða búið þannig ég get skipt aftur yfir á dýraplánetuna...

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 22:25:44 / josan

Rækjufætur

Ég er komin með netið eftir laaaaaaaanga bið, en ég get ekki bloggað núna ég er með skrifstíflu.

Eftir miklar pælingar þá ákvað ég mig loksins og er búin að kaupa flugmiða þannig að ég kem heim um jólin :D og ég hlakka alveg rosalega til =) ekki að það sé ekki gaman hérna en jólin eru bara best heima í kuldanum... :D

Sama hvað hver segir þá elska ég Love Actually og hún er komin efst á listann hjá mér og rétt náði að toppa Toy story hvað áhorf varðar....

Shi... hvað þetta er leiðinlegt blogg, en allavega, takk fyrir öll kommentin mér finnst svo gaman að lesa þau...

og knús til ykkar allra heima og ekki heima...


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti