í strumpalandi

Strumpurinn í Danmörku

14.10.2008 19:51:36 / josan

æ ég er orðin þreytt á Jörgen

Í dag gerðist svoldið skemmtilegt, við fengum kall til að laga vaskinn okkar. Málið var nefnilega að alltaf þegar Morten var í sturtu og ég vaskaði upp þá kom brúnt vatn úr krananum. Svo eftir svona 10 skipti (vegna þess að ég er með svo langan fattara fattiði) þá rann upp fyrir mér ljós að það var kannski vegna þess að hann var í sturtu að það kom brúnt vatn. Og loksins dröttuðumst við til að hringja í húsvörðinn og voila það er kemur bara einungis hreint glært frábært vatn úr vaskinum núna! Aldeilis lúksus.

Mér var nú líka alltaf svo illt ímaganum þegar ég drakk vatnið en var samt ekkert að kveikja útaf hverju það var...hehe (þarna var langi fattarinn að verki aftur)

Æ ég varð bara að blogga vegna þess að ég var orðin svoldið þreytt á honum Jörgen sem var alltaf að troða sér á toppin á síðunni minni. Það eru líka langflestir farnir að kalla mig júunn núna þannig þetta er allt að koma.

Ég er í fríi alla vikuna, ótrúlegur lúksus og á laugardaginn ætlum við í smá road trip til Århus og heimsækja Sigrúnu og kíkja á barnaföt á bumbubarnið! Hlakka svo til!!

Gott að hafa einhverja klakverja til að tala við svona því að Berglind er farin :cry:

Svo eru bara 2 mánuðir þangað til ég kem heim (svo lengi sem express fer ekki á hausinn allavega) Þá höldum við Hrefna bara jól hérna á meðal baunanna, það er svosem allt í lagi því ég á jólatré =)

Og Þóra þú ert alveg að misskilja það er ótrúlega cool að blogga, annars væri ég náttla ekki að því, það er ekki seinna vænna að fara að blogga svo að þú verðir cool aftur ;)

Hófí Fjóla skrifaði
hæhæ sæta stelpa... ekki gott að vera kominn með leið á honum jorgen herna efst og svo seturu hann aftur þarna efst.. hehehe

en langaði bara aðeins að kvitta fyrir komuna..ég les skom bloggið þitt allaf þó ég gleymi kannski nu stundum að commenta..:)):)

en við sjáumst sæta sæta..:)

kveðja Hófí Fjóla..:)
Jórunn skrifaði
haha, þú ert svo klár Hófí. Ég hafði ekki tekið eftir því, damn nú verð ég að blogga aftur!
Svo bíð ég nú alltaf eftir að fá þig í heimsókn, þú þekkir nú svo marga hérna =) Væri allavega gaman að fá þig sæta mín
Hrefna Rós skrifaði
Já já , reddum alveg jólunum hérna, svo lengi sem þú gerir svona góðar smákökur:P
snjólaug skrifaði
þið syndið bara til íslands:)
Berglind skrifaði
Oh já, það væri nú gaman að vera úti og við gætum farið á kaffihús saman, kíkt í búðir eða þú bakað köku ;)

Ennnnn, hvaða bumbukrílu ertu að tala um??? Ekki ert þú með bumbukríli í maganum????????????
Jórunn skrifaði
hehe neinei ég er bara með mat í maganum =) ennþá allavega ;)Var að tala um bumbukrílið hennar Sigrúnar vinkonu.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti